16. júlí 2026
Collab í samstarf með 66°Norður
Nýtt bragð af Collab hefur verið kynnt til leiks í samstarfi við íslenska útivistamerkið 66°Norður sem fagnar 100 árum í ...
Um okkur
Fjárfestar
Vinnustaðurinn
Sjálfbærni
Hafa samband
nýtt bragð
Nýtt bragð af Collab hefur verið kynnt til leiks í samstarfi við íslenska útivistamerkið 66°Norður sem fagnar 100 árum í ár. Skírskotun drykksins er íslenska sumarið og nostalgían sem því fylgir. Bragðið er eitthvað sem landsmenn geta tengt við uppskeru seinni parts sumars en í drykknum má nefnilega finna keim af rabbabara, rifsberjum og sólberjum. Það má því segja að hér sé íslenskt sumar aðgengilegt í dós, algjörlega óháð veðri.
Drykkurinn kemur í takmörkuðu upplagi og á hárréttum tíma fyrir ferðalög um landið, útilegur og útivist næstu vikna í aðdraganda verslunarmannahelgar.