19. ágúst 2026
UPP með blóðappelsínu og ananas bragði
Við bjóðum velkomið nýtt bragð af ferskustu leiðinni að próteini! UPP með blóðappelsínu og ananas bragði. UPP inniheldu ...
Um okkur
Fjárfestar
Vinnustaðurinn
Sjálfbærni
Hafa samband
nýtt bragð
Nýtt bragð af Collab hefur verið kynnt til leiks í samstarfi við íslenska útivistamerkið 66°Norður sem fagnar 100 árum í ár. Skírskotun drykksins er íslenska sumarið og nostalgían sem því fylgir. Bragðið er eitthvað sem landsmenn geta tengt við uppskeru seinni parts sumars en í drykknum má nefnilega finna keim af rabbabara, rifsberjum og sólberjum. Það má því segja að hér sé íslenskt sumar aðgengilegt í dós, algjörlega óháð veðri.
Drykkurinn kemur í takmörkuðu upplagi og á hárréttum tíma fyrir ferðalög um landið, útilegur og útivist næstu vikna í aðdraganda verslunarmannahelgar.