Dótturfélög Beru hækka ekki verð á framleiðsluvörum umfram verðbólgumarkmið

21. september 2026

Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar, Danól, Gæðabaksturs og Kjarnavara, skuldbindur sig til að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna um áramótin umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans, þrátt fyrir 3,5% launahækkun samkvæmt kjarasamningum. Fyrirtækið segir jafnframt að styrking krónunnar geti leitt til verðlækkana á innflutningsvörum Danól og Ölgerðarinnar á næstu dögum. Með þessu vill Bera leggja sitt af mörkum til að draga úr verðbólgu og skapa aukinn fyrirsjáanleika fyrir vinnumarkaðinn og stjórnvöld.