9. október 2026
Fréttatilkynning vegna húsleitar hjá Ölgerðinni
Nú í morgun gerði Samkeppniseftirlitið húsleit hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðar Egils Skallagrímssonar. Húsleitin varðar ...
Um okkur
Fjárfestar
Vinnustaðurinn
Sjálfbærni
Hafa samband
fyrirtæki
Nú í morgun gerði Samkeppniseftirlitið húsleit hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðar Egils Skallagrímssonar.
Húsleitin varðar rannsókn eftirlitsins á meintum brotum Ölgerðarinnar á reglum um bann við misnotkun á markaðsráðandi stöðu, í kjölfar kvartana samkeppnisaðila.
Stjórnendur hafa engar upplýsingar um að brot hafi átt sér stað í starfsemi félagsins. Rík áhersla er lögð á fylgni við samkeppnisreglur í rekstri þess og er það hluti af þjálfun starfsfólks Ölgerðarinnar að fá fræðslu um það hvernig stór aðili á markaði þurfi að haga sér í samkeppni.
Ölgerðin og Bera munu aðstoða eftirlitið við athugun sína og vona að rannsókn þess ljúki sem fyrst. Frekari upplýsingar um málið liggja ekki fyrir að svo stöddu.