9. nóvember 2026
Upp drykkurinn slær í gegn
Prótíndrykkurinn UPP var valinn á úrslitalista World Beverage Innovation Awards, alþjóðlegra nýsköpunarverðlauna í drykk ...
Um okkur
Fjárfestar
Vinnustaðurinn
Sjálfbærni
Hafa samband
collab
Samstarf íslensku tónlistarstjörnunnar Laufeyjar og Collab hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna á World Beverage Innovation Awards 2026. Verkefnið var valið besta markaðsherferðin (Best Marketing Campaign) í samkeppni við stór alþjóðleg vörumerki, meðal annars PepsiCo. Verðlaunin voru afhent í gær á BrauBeviale í Nürnberg í Þýskalandi.
Samstarf Grammy-verðlaunahafans Laufeyjar og íslenska drykkjarvörumerkisins Collab hófst fyrr á árinu þegar kynntur var sérstakur drykkur í takmörkuðu upplagi. Laufey tók sjálf virkan þátt í sköpuninni og varð útkoman einstök blanda af jarðarberjum og matcha, þar sem bragð, hönnun og markaðssetning sóttu innblástur í hennar draumkennda og rómantíska tónlistarheim.
Nú hefur þetta íslenska samstarfsverkefni hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir frumlega nálgun á markaðssetningu og skapandi samstarf listamanns og vörumerkis.
„Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt og við erum að sjálfsögðu í skýjunum! Að vinna til alþjóðlegra verðlauna fyrir bestu markaðsherferðina, í samkeppni við nokkur af stærstu vörumerkjum heims, er gríðarleg viðurkenning. Við erum sérstaklega stolt af því að þetta er íslenskt verkefni sem byggir á sköpunargleði, hugrekki og frábæru samstarfi við Laufeyju,“ segir Vaka Njálsdóttir, vörumerkjastjóri Collab hjá Ölgerðinni.
Þegar tveir ólíkir heimar mætast
Frá upphafi var lögð áhersla á að samstarfið yrði meira en hefðbundin markaðsherferð með þekktum einstaklingi. Laufey kom sjálf að þróun drykkjarins og var hennar listræni heimur leiðarljósið í allri útfærslu verkefnisins.
„Það var einstaklega skemmtilegt og persónulegt að fá að þróa nýja útgáfu af Collab frá grunni. Það var gaman að fá að setja minn eigin svip á vöruna, herferðina og samstarfið í heild og deila lítilli sneið af Íslandi með fylgjendum mínum. Ég er ótrúlega stolt af því sem við sköpuðum saman og það er virkilega ánægjulegt að sjá þetta samstarf, sem varð til heima á Íslandi, fá athygli og viðurkenningu á alþjóðavettvangi,“ segir Laufey.
„Það sem gerði þetta samstarf svo sérstakt var hversu mikil þátttaka Laufeyjar var í sköpuninni. Við vildum ekki bara setja nafnið hennar á dós heldur búa til eitthvað sem endurspeglaði hana og hennar heim. Það er ótrúlega gaman að sjá að sú nálgun hafi ekki aðeins náð til aðdáenda hennar heldur líka vakið athygli alþjóðlegrar dómnefndar. Þetta sýnir að íslensk vörumerki geta svo sannarlega staðið jafnfætis þeim stærstu þegar kemur að hugmyndum og sköpun,“ segir Vaka.
World Beverage Innovation Awards eru alþjóðleg nýsköpunarverðlaun á vegum FoodBev Media og voru nú veitt í 23. sinn. Verðlaunin ná til fjölbreyttra sviða drykkjarvöruheimsins, allt frá vöruþróun og hönnun til markaðssetningar og nýsköpunar.
Sigur Collab x Laufey í flokki bestu markaðsherferðarinnar er því ánægjuleg viðurkenning fyrir íslenska hugmyndavinnu og samstarf sem hefur nú vakið athygli langt út fyrir landsteinana.