21. október 2026
Boli áfengislaus
Nú er loksins hægt að njóta Bola með sínu þroskaða og þétta bragði í sannkallaðri gleðivímu. Bruggmeistararnir gefa enga ...
Um okkur
Fjárfestar
Vinnustaðurinn
Sjálfbærni
Hafa samband
fyrirtæki
Síðustu ár hafa mjóar dósir orðið nær allsráðandi á gosdrykkjamarkaði hér á landi. Dósirnar kallast „sleek“-dósir og eru mjórri og hærri en þær dósir sem áður voru vinsælastar og eru enn notaðar fyrir flestar bjórtegundir.
Að undanförnu hefur þó vakið athygli að nokkrar íslenskar tegundir hafa verið seldar í gömlu dósunum á ný. Þetta eru Appelsín, Kristall og Pepsi Max sem Ölgerðin framleiðir. Elísabet Austmann hjá Ölgerðinni segir við mbl.is að ástæða þessa sé ekki óánægja með mjóu dósirnar heldur að ekki hafi tekist að fá nægjanlegt magn af þeim frá erlendum framleiðanda.
„Þrátt fyrir að alls konar nostalgía sé í mikilli tísku þessa dagana þá hefur þessi breyting því miður ekkert með slíkt að gera. Vegna takmarkaðs framboðs á sleek-dósum í sumar hefur birgjum okkar ekki tekist að halda í við þann mikla vöxt sem verið hefur í dósasölu á okkar vinsælustu vörum,“ segir Elísabet.