14. júlí 2026
Ölgerðin hlýtur ISO 14001 vottun
Ölgerðin hefur hlotið ISO 14001 vottun, alþjóðlega viðurkenndan staðal fyrir umhverfisstjórnun. Vottunin staðfestir að Ö ...
Um okkur
Fjárfestar
Vinnustaðurinn
Sjálfbærni
Hafa samband
Ölgerðin hefur hlotið ISO 14001 vottun, alþjóðlega viðurkenndan staðal fyrir umhverfisstjórnun. Vottunin staðfestir að Ölgerðin starfar samkvæmt umhverfisstjórnunarkerfi sem stuðlar að ábyrgum rekstri og stöðugum umbótum. Umbótamenning er lykilþáttur í starfsemi Ölgerðarinnar og eitt helsta verkfæri til að ná fram stöðugum framförum í sjálfbærni og rekstri. Með stöðugum umbótum drögum við úr sóun, kolefnisspor minnkar og kostnaður lækkar. Ölgerðin vinnur að því að draga markvisst úr loftslags- og umhverfisáhrifum í starfsemi með því að minnka kolefnislosun, auka orkunýtni og bæta nýtingu auðlinda.
Vottunin er mikilvægur áfangi í sjálfbærnivegferð Ölgerðarinnar og endurspeglar skýra áherslu fyrirtækisins á ábyrga nýtingu auðlinda og umhverfismál. Hún styrkir jafnframt áframhaldandi vinnu við að þróa reksturinn með sjálfbærni að leiðarljósi.
ISO 14001 vottunin bætist í hóp þeirra vottana sem Ölgerðin hefur þegar hlotið, sem eru ISO 9001, FSSC 22000 og ÍST 85:2012.