Aftur í öll störf

Tæknimaður í kaffiþjónustudeild hjá Ölgerðinni

Ölgerðin leitar eftir öflugri og jákvæðri manneskju í kaffiþjónustudeild til að sinna fyrirbyggjandi viðhaldi og viðgerðum á kaffivélum ásamt öðrum tilfallandi verkefnum á verkstæði.

Hlutverk og ábyrgð

  • Uppsetningar á kaffivélum
  • Viðgerðir, viðhald og önnur verkefni tengd kaffivélum
  • Önnur tilfallandi störf sem koma upp í þjónustudeild

Hæfniskröfur:

  • Tækniþekking og verkkunnátta
  • Áhugi á kaffi og kaffivélum kostur
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Þjónustulund og stundvísi
  • Góð íslensku- og ensku kunnátta
  • Tölvuþekking og bílpróf
  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur

 Umsóknarfrestur er til og með 13. april. nk

Við hvetjum fólk af öllum kynjum að sækja um.

 

Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf.

Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík


Umsóknarfrestur frá:

30. mars 2026

Umsóknarfrestur til:

13. apríl 2026

Hafa samband:
starf@olgerdin.is