21. september 2026
Dótturfélög Beru hækka ekki verð á framleiðsluvörum umfram verðbólgumarkmið
Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar, Danól, Gæðabaksturs og Kjarnavara, skuldbindur sig til að hækka ekki verð framleiðsluvar ...
Um okkur
Fjárfestar
Vinnustaðurinn
Sjálfbærni
Hafa samband
fyrirtæki
JTV fyrir hönd Beru hf, kt. 420369-7789, auglýsir eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu alútboði vegna hönnunar og byggingar á um 23.000 m2 vöruhúsi á Hólmsheiði í Reykjavík.
Verkið felur í sér fullnaðarhönnun og byggingu á vöruhúsi sem mun m.a. hýsa sjálfvirkt vöruhús, kæli- og frystigeymslur, vörumóttöku og skrifstofur.
Helstu verkþættir eru:
• Fullnaðarhönnun húss og lóðar
• Aðstöðusköpun og jarðvinna
• Uppsteypa og reising burðarvirkis
• Frágangur utanhúss
• Frágangur innanhúss, þ.m.t. rafkerfi, lagnakerfi og kæli- og frystikerfi
• Frágangur lóðar
Forvalsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með 31. ágúst 2026. Áhugasamir skulu hafa samband við Fjalar Hauksson hjá JTV ehf með því að senda tölvupóst á netfangið fjalar@jtv.is og gefa upp nafn, nafn fyrirtækis, síma og netfang og fá í kjölfarið aðgang að forvalsgögnum.
Skilafrestur umsókna er 28. september 2026, klukkan 13.