ORKA PARADÍS – ný bragðtegund frá ORKU

nýtt bragð

18. september 2026

Nýjasti leikmaðurinn í ORKU-fjölskyldunni er mættur á markað: ORKA PARADÍS.

Hönnun dósarinnar er unnin í samstarfi við myndlistarmanninn Stein Loga, sem skapaði sérstaklega verkið sem prýðir umbúðirnar. Verkið var málað á striga og færir dósinni einstakt og litríkt yfirbragð þar sem myndlist og ORKA mætast.

Með PARADÍS heldur ORKA áfram að leika sér með bragð, lit og sköpunargleði – bæði innan og utan dósarinnar.

ORKA PARADÍS er komin á markað. Smakkið, njótið og lifið heil!