5. júní 2026
Nýtt bragð frá Fun Light: Elderflower komið í verslanir
Fun Light hefur bætt nýju og spennandi bragði við vinsæla vörulínu sína. Fun Light Elderflower er nú komið í verslanir u ...
Um okkur
Fjárfestar
Vinnustaðurinn
Sjálfbærni
Hafa samband
matvara
Fun Light hefur bætt nýju og spennandi bragði við vinsæla vörulínu sína. Fun Light Elderflower er nú komið í verslanir um land allt og býður upp á ferskt, létt og blómlegt bragð sem hentar fullkomlega fyrir sumardagana.
Elderflower, eða ylliblóm, hefur á síðustu árum orðið eitt vinsælasta bragðið í drykkjum víða um heim. Létt og sumarlegt bragðið gerir það að eftirsóknarverðum valkosti fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt og öðruvísi.
Fun Light Elderflower er fullkomið fyrir þá sem vilja leika sér með bragðið. Njóttu þess á klassíska mátann með vatni og klökum, notaðu það í mockteila, búðu til frostpinna fyrir heita sumardaga eða frystu það í klaka sem setja skemmtilegan blæ á drykkina. Fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt er Fun Light Elderflower líka frábær grunnur í létta sorbet-ísa og aðrar sumarlegar kræsingar.
Prófaðu Hugo Spritz mocktail með Fun Light Elderflower
Hráefni
150 ml sódavatn
50 ml Fun Light Elderflower (blandað samkvæmt leiðbeiningum)
½ lime, skorið í sneiðar
Nokkur fersk myntulauf
Klakar
Lime sneið og mynta til skrauts
Aðferð
Fylltu stórt glas af klökum.
Settu lime sneiðar og myntulauf út í glasið og þrýstu létt á þau til að losa bragð og ilm.
Helltu Fun Light Elderflower yfir.
Bættu sódavatni út í og hrærðu varlega.
Skreyttu með lime sneið og ferskri myntu.
Léttur, ferskur og sumarlegur drykkur sem hentar við öll tilefni.